Smiðjustígur 11E, 845 Flúðir
42.900.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
2 herb.
59 m2
42.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2022
Brunabótamat
32.250.000
Fasteignamat
32.350.000

Gimli fasteignasala og Ólafur Björn Blöndal löggiltur fasteignasali kynna: 

Smiðjustígur 11 Flúðir - Nýlegt endaraðhús á einni hæð með mikilli lofthæð. 


Einstaklega smekklega útfært og vel skipulagt endaraðhús á einni hæð. Eignin er skráð 59,8 fm og skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, svefnherbergi, baðherbergi og sér geymslu í sameign. Mikil lofthæð eða tæpir 4,4 m. sem eykur á rými, birtu og glæsileika, ásamt því að fallegir bitar setja smekklegan svip. 

NÁNARI LÝSING:
Forstofa: Björt með stórum gluggum, ljóst harðparket á gólfi.
Eldhús: Afar rúmgott með fallegri hvítri innréttingu frá HTH, ljósgráar borðplötur, innbyggður ísskápur og uppþvottavél, blástursofn og span helluborð. Vönduð eldhústæki frá AEG. 
Stofa/borðstofa: Fallegt rými með mikilli lofthæð og viðarbitum sem setja mikinn svip á eignina. Ljóst harðparket á gólfi. Útgengi á notalegan, afgirtan sólpall. 
Svefnherbergi: Eitt mjög rúmgott svefnherbergi með parketi og mikilli lofthæð. 
Baðherbergið er mjög glæsilegt,og rúmgott flísalagt í hólf og gólf, "walk in " sturta með glerhurðum, hvítlökkuð innrétting og tengi fyrir þvottavél og þurkara. 
Risgeymsla er innan íbúðarinnar og er hurð/ lúga hana frá svefnherbergi en geymslan er yfir öllu baðherberginu. 
Sérgeymsla í sameign fylgir húsinu ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu í miðjurými hússins.
Lóðin er frágengin, tyrfður garður við enda hússins og að aftanverðu ásamt afgirtum sólpalli. 
Verið er að vinna í að breyta lóðarsamningi þannig að hvert hús í lengjunni verði með sérafnotarétt. 
 
Um er að ræða einstaklega vel skipulagða og smekklega eign á frábærum stað á Flúðum. Hentar vel t.d. til útleigu til ferðamanna, sem frístundadvalarstaður eða fyrir fasta búsetu. 
Flúðir og nágrenni eru sérlega heillandi svæði til búsetu vegna mjög góðra innviða sveitarfélagsins, þjónustu, skólamála, afþreyingar, náttúrufegurðar og veðursældar.   Mikil uppbygging er að eiga sér stað á Flúðum bæði í byggingu nýrra íbúða ásamt mikilli viðbótaruppbyggingu í ferðaþjónustu og má þar nefna baðlón og hótelbyggingu sem samþykkt hefur verið við Litlu Laxá innan Flúða. 


 
Almennt um heildareignina:

Útveggir langhliða eru timbur en allir veggir milli íbúða eru steinsteyptir ásamt gaflveggjum. 
Húsin eru klædd að utan með grálituðu innbrenndu áli, þ.e. þak og útveggir ásamt því að gaflar og hluti bakhliðar eru viðarklædd með lerki.  
Sérgeymslur fylgja með hverri íbúð ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu í miðjurými hússins með útgengt í garðinn til suðurs. 
Útgengi er úr stofu íbúða í suðurgarð og fylgir sólpallur með hverri og einni íbúð.  
Mikil lofthæð er íbúðunum eða tæpir 4,40 mtr. sem eykur á rými, birtu og glæsileika, ásamt því að fallegir bitar setja smekklegan svip.  
Risgeymslur eru yfir hverri íbúð, þ.e. yfir baðherbergi.  
Smekklegir ljóskastarar eru í stofuloftum íbúða og í svefnherbergjum, innfelld loftljós á baðherbergi. 
Aðgengi að lagnaleið fyrir rafmagnskapal fyrir bílhleðslu er til staðar fyrir framan hvert hús.  
Sorpgeymslur eru sameiginlegar.   
Bílaplön eru malbikuð og lóðin við húsið frágengin og tyrfð við enda og til suðurs.  

NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINA:
Eldhús með hvítlökkuðum vönduðum innréttingum frá HTH með fræstum gripum: 
Vönduð eldhústæki frá AEG. Innbyggð uppþvottavél, ísskápur með frysti, spanhelluborð með fjórum hellum og veggofn.  
Baðherbergi eru fullbúin með flísum, "walk in" sturtu með glerveggjum, hvítlökkuð innrétting með spegli, ljósum og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.  
Gólfefni eru grátt harðparket á öllum rýmum nema baðherbergi.   
Gólfhiti er í öllum rýmum íbúða. 
 

Nánari upplýsingar veitir Ólafur Björn Blöndal Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja og skipasali, í síma milli kl. 9:00 og 17:00 alla virka daga. 690 0811, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til [email protected] 

Gimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta. Gimli, gerir betur...
Gimli er staðsett á 2. hæð á Grensásvegi 13, 108 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.
Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími: 570 4800, tölvupóstur: [email protected]
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.