Vatnsstígur 13, 101 Reykjavík (Miðbær)
78.900.000 Kr.
Fjölbýli
2 herb.
73 m2
78.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2004
Brunabótamat
58.150.000
Fasteignamat
75.800.000

Gimli fasteignasala og Herdís Valb. Hölludóttir kynna: Fallega og rúmgóða 73,5 fm. 2ja herb. íbúð í lyftuhúsi auk stæðis í bílageymslu. Íbúðin er opin og björt með stórum gluggum og staðsett í einu af vinsælustu hverfum í miðbæ Reykjavíkur.
Íbúðarhlutinn er skráður sem hér segir hjá FMR: Eign 226-4151, birt stærð 73.5 fm en þar af er sér geymsla skráð 9,4 fm. Nánar tiltekið eign merkt 01-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin skiptist í: Forstofu/hol, 1 svefnherbergi, 1 stofu, 1 eldhús og 1 baðherb. Stæði í bílageymslu. Geymslu.
* Vinsamlega bókið skoðun hjá Herdísi, s: 694-6166 eða [email protected]
* Smelltu hér fyrir söluyfirlit *
NÁNARI LÝSING:
Anddyri: Parket á gólfi og fínir fataskápar.
Eldhús: Vandaðar innréttingar og tæki með góðu skápaplássi. Granítplata á eldhúsborði, ísskápur og uppþvottavél fylgja með.
Stofan: Björt og rúmgóð með parketi á gólfi og gluggum á tvo vegu. Útgengi er á svalir til austurs og norðurs með útsýni til sjávar.
Baðherbergið: Rúmgott með fallegum flísum á gólfi. Góð innrétting, sturtuklefi með innbyggðum tækjum, gluggi og hiti í gólfum.
Svefnherbergið: Parket á gólfi og vandaðir fataskápar.
Þvottaherbergi: Sameiginlegt á sömu hæð og íbúðin.
Sérgeymsla: Rúmgóð með hillum og skáp.
Bílastæði: Í lokaðri og upphitaðri bílageymslu. Þvottaaðstaða fyrir bílinn og búið að leggja fyrir rafhleðslustöð.
Ekið inn á bílastæði frá Lindargötu.
Niðurlag: Virkilega falleg og rúmgóð eign á vinsælum stað og stutt í helstu þjónustu s.s. verslanir, veitingahús, Hörpuna ofl.
Nánari upplýsingar veitir: Herdís Valb. Hölludóttir Löggiltur fasteignasali og lögfræðingur, í síma 6946166, tölvupóstur [email protected] eða [email protected]

Gimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta. Gimli, gerir betur...
Gimli er staðsett á 2. hæð á Grensásvegi 13, 108 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.
Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími: 570 4800, tölvupóstur: [email protected]
Heimasíða Gimli fasteignasölu
Gimli á Facebook
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.