Þurárhraun 6, 815 Þorlákshöfn
97.500.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
4 herb.
130 m2
97.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2023
Brunabótamat
0
Fasteignamat
6.650.000

Gimli fasteignasala kynnir í einkasölu: Glæsilegt steypt endaraðhús með innbyggðum bílskúr í byggingu á einni hæð á frábærum stað í nýju hverfi í Þorlákshöfn.

Um er að ræða 4ra herbergja endaraðhús í byggingu með bílskúr, vönduðum innréttingum, og gólfefnum ásamt rennihurð út á pall. Innfeldar hvíta innihurðar, harðparket á gólfum ásamt flísum. Húsið er samtal 130,5 fm. Samkvæmt teikningu þá skiptist húsið í forstofu, eldhús og stofu í alrými, 3 svefnherbergi, baðherbergi / þvottahús og bílskúr.
Húsið afhendist fullbúið að innan og utan ásamt því að lóð er frágengin með steyptu plani, tveimur pöllum með skjólgirðingu og tyrfði lóð.
Hitalagnir eru í gólfum og hitastýringakerfi uppsett ásamt stýringum.
Virkilega gott skipulag þar sem fermetrarnir nýtast vel.

Nánari upplýsingar veitir Elín Urður Hrafnberg Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 690-2602, tölvupóstur [email protected]

Húsið afhendist fullbúið í maí/júní 2024.


NÁNARI LÝSING:
Forstofa: með gráum 60*60 flísum á gólfi og góðum forstofuskápum.
Eldhús/stofa: í alrými með fallegri grárri innrétting, ljósum stein á borði með undirfeldum vask. Innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, eyju með helluborði og háf, ljósum stein á borði. Ofn og örbylgjuofn í vinnuhæð og rennihurð út á 81,5 fm. sólríkan og skjólstæðan suðurpall.
Baðherbergi: með gráum 60*60 flísum á gólfi og veggjum, innréttingu með vaski og spegla skáp með ljósum fyrir ofan, upphengt wc, handklæðaofni og walk in sturtu með glerlokun. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara og hurð út á pall. 
Hjónaherbergi: með góðum fataskápum, harðparketi á gólfi og rennihurð út á pall.
Svefnherbergi#2: með fataskápum og harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi #3: með fataskápum og harðparketi á gólfi.
Bílskúr: með floti á gólfi og innkeyrsluhurð með rafmagnsopnara
Geymsla: inn af bílskúr.
Lóð: fullfrágengin lóð með steyptu bílaplani, palli að framan og aftan ásamt tyrfðri lóð.  

Eign sem vert er að skoða.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður innheimt 0,3% af brunabótamati. 

Niðurlag:

Róleg og fjölskylduvæn staðsetning þ.s grunnskóli, leikskóli, sundlaug og íþróttasvæði er í góðu göngufæri. Í Þorlákshöfn er öll þjónusta fyrir fjölskyldur með börn til mikillar fyrirmyndar og er mjög gott íþrótta- og tómstundastarf í bænum. Grunn- og leikskólastarf er mjög gott. Í næsta nágrenni er 18 holu golfvöllur og í bænum er öflugt hestamannafélag. 

Gimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta. Gimli, gerir betur...
Gimli er staðsett á 2. hæð á Grensásvegi 13, 108 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.
Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími: 570 4800, tölvupóstur: [email protected]
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.