Bæjartröð 10, 800 Selfoss
Tilboð
Hesthús
1 herb.
120 m2
Tilboð
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2005
Brunabótamat
41.100.000
Fasteignamat
12.950.000

***Hesthúsið er selt með fyrirvara um fjármögnun***

Gimli
fasteignasala kynnir í einkasölu: Bæjartröð 10, frábært steinsteypt 11-14 hesta hús byggt 2005 í hesthúsahverfinu á Selfossi.
Um er að ræða heildareignina, skráða skv. HMS 120 fm. en búið er að útbúa kósý stofu á efri hæðinni sem er ekki inn í fermetrum. Húsið stendur á 553,0 fm lóð. Heitt og kalt vatn og frárennslislagnir í húsinu.
Í húsinu eru þrjár eins til tveggja hesta stíur með háum milligerðum og fjórar tveggja hesta stíur ásamt sér gerði.
 Breiður og góður fóðurgangur með gúmmímottum. Mjög björt og góð kaffistofa með eldhúsinnréttingu og flísum á gólfi, hurð út á steypta stétt, stigi upp í kósý stofu með glugga inn í hesthúsið, salernisaðstaða, hlaða með innkeyrsludyrum og hnakkageymsla klædd með harðvið. Haughús undir stíunum.  
Innréttingarnar eru riðfríar og klæddar með harðvið.
 Gólfhiti er í í öllu húsinu. 
Húsið er mjög vel staðsett á suðaustur horni hverfisins við reiðstíginn. 
Húsið er skráð á fokheldisstigi 4 og matsstig 8 þar sem það á eftir að einangra og klæða húsið að utan.

Eigendur skoða það að taka minna hesthús uppí.

Einnig er hægt að kaupa helminginn í hesthúsinu á 14.000.000.- og er seljandinn til í að veita seljendalán fyrir hluta af upphæðinni í allt að 7 ár.


Nánari upplýsingar veitir Elín Urður Hrafnberg, Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 6902602, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til [email protected]

Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnaði því 40 ára starfsafmæli á árinu 2022. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli, gerir betur...

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
 
Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á. 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.