Traust og nútímaleg viðskipti
Velkominn á heimasíðu fasteignasölunnar Gimli. Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á þriðja áratug. Hjá okkur starfa 9 sérhæfðir og reyndir starfsmenn sem eru boðnir og búnir að veita alla þá þjónustu sem þú átt skilið
Hvar erum við ?
Fasteignasalan Gimli er á 2. hæð að Grensásvegi 13, á horni Grensásvegar og Skeifunnar.
Við höfum opið frá 9-17 alla virka daga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.
Félag fasteignasala
Fasteignasalan Gimli er í Félagi Fasteignasala.