La caleta, tenerife , 956 Tenerife
88.500.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
2 herb.
83 m2
88.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2013
Brunabótamat
0
Fasteignamat
0

Gimli fasteignasala og Daði Runólfsson löggiltur fasteignasali kynna:

Glæsileg íbúð á Adeje-svæðinu, Tenerife. Íbúðin er 50 fm með 33 fm verönd, staðsett í lúxusíbúðarhúsinu 'Baobab Suites', sem er eitt það nútímalegasta á suðurhluta Tenerife, byggt árið 2013. Íbúðin samanstendur af rúmgóðri stofu, svefnherbergi með innbyggðum fataskápum, baðherbergi með sturtu, baðkari og tvöföldum vaski. Stór verönd, samtals 33 fm með stórkostlegu útsýni yfir hafið og til fjalla. Íbúðin er með loftkælingu. Heildarflatarmál er 83 fm með verönd. Fullbúið eldhús með eyju. Hægt er að kaupa eða leigja bílastæði innan samstæðunnar. Mikil þjónusta og aðstaða er í húsinu þar sem í hluta þess er rekið hótel, þar á meðal tvær upphitaðar sundlaugar, veitingastaðir og kaffihús, líkamsræktarstöð, móttaka og fleira. Hér er um að ræða lúxuseign með mikilli þjónustu á besta stað á suðurhluta Tenerife.  

Frábær staðsetning á sólríkasta hluta Tenerife. Héðan er stutt í þjónustu, verslanir og afþreyingu. Frábærir golfvellir og strendur í stuttri fjarlægð. Miklir möguleikar á leigu til ferðamanna allt árið um kring. Traust fyrirtæki í eignaumsjón eru á svæðinu, hvort sem er vegna útleigu eða almennrar eignaumsjónar. 

Við erum í samstarfi við trausta fasteignasölu á Tenerife sem fylgir kaupendum eftir í gegnum kaupferlið.
Kaupverð er í evrum 595.000. Umreiknað í íslenskar krónur til viðmiðunar miðað við gengi 28/3 2023. Ofan á kaupverð leggst 6,5% skattur ásamt kostnaði við þinglýsingu.


Nánari upplýsingar veitir Daði Runólfsson, löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 6981164 eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.