Calle galicia, tenerife , 956 Tenerife
64.100.000 Kr.
Raðhús
3 herb.
218 m2
64.100.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1999
Brunabótamat
0
Fasteignamat
0

Gimli fasteignasala kynnir: Fullbúið raðhús staðsett á hinu vinsæla Torviscas-svæði í Adeje á suðurhluta Tenerife. Nálægt allri þjónustu í rólegu íbúðahverfi. Aðeins 15 mínútna akstur frá flugvelli.

Húsið er með góðu aðgengi frá götu og rúmgóðum bílskúr með sjálfvirku hliði og beinu aðgengi við jarðhæð hússins. Húsið er selt fullbúið.
Rúmgóð verönd að hluta yfirbyggð að framanverðu. Þaðan er gengið inn um stórar dyr beint inn í rúmgóða stofu og áfram í átt að borðstofu ásamt fullbúnu eldhúsi. Úr eldhúsi er gengið út á bakverönd. Gengið upp á efri hæðina úr stofu. Þar eru tvö stór svefnherbergi, annað með baðherbergi og verönd með útsýni. Sameiginleg sundlaug og sólbaðsaðstaða.
Frábær staðsetning á sólríkasta hluta Tenerife. Héðan er stutt í þjónustu, verslanir og afþreyingu. Frábærir golfvellir og strendur í stuttri fjarlægð. Miklir möguleikar á leigu til ferðamanna allt árið um kring. Traust fyrirtæki í eignaumsjón eru á svæðinu, hvort sem er vegna útleigu eða almennrar eignaumsjónar. 

Nánari upplýsingar veitir Daði Runólfsson, löggiltur fasteignasali í síma 698-1164 eða í tölvupósti [email protected]

Við erum í samstarfi við trausta fasteignasölu á Tenerife sem fylgir kaupendum eftir í gegnum kaupferlið.
Kaupverð er í evrum 430.000. Umreiknað í íslenskar krónur til viðmiðunar miðað við gengi 28/3 2023.


Viðbótarupplýsingar:
Ofan á kaupverð leggst 6,5% skattur ásamt kostnaði við þinglýsingu.
Sameiginleg gjöld vegna sameignar eru  €60 á mánuði.
Fasteignaskattar eru  € 440/ári.
Húsið er byggt árið 1999

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.