Gran oasis tenerife , 956 Tenerife
37.500.000 Kr.
Fjölbýli
2 herb.
74 m2
37.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
0
Brunabótamat
0
Fasteignamat
0

Gimli fasteignasala og Daði Runólfsson löggiltur fasteignasali kynna:

Vel staðsett íbúð í Gran Oasis Resort við Las Americas golfvöllinn. Íbúðin er með einu svefnherbergi, stofu, eldhúsi og góðu útisvæði. Vel við haldið sundlaugarsvæði með upphitaðri sundlaug og barnalaug, einnig er líkamsrækt og leikjaherbergi í sameign. Rólegt og notalegt umhverfi er í kringum íbúðarhúsið og góðar gönguleiðir. Þegar gengið er inn í íbúðina er eldhús á hægri hönd sem er opið inn í stofu. Í stofunni er pláss fyrir sófa og sjónvarpshorn, þaðan er gengið út um stórar dyr með rennihurðum á 6 fm svalir þessarar hæðar með sjávarútsýni og morgunsól. Gengið er niður stiga á neðri hæð, baðherbergi á hægri hönd sem er stórt og rúmgott með sturtu. Á sömu hæð er stórt svefnherbergi með hjónarúmi og innbyggðum fataskápum. Úr svefnherberginu er gengið um stórar dyr út á verönd sem er ca 12 fm. Hér er pláss fyrir sólbekki og borðstofuborð. Húsið er staðsett í vel við höldnu íbúðarhúsi. Aðgengi er að bílakjallara með ómerktum stæðum fyrir íbúa hússins. 

Frábær staðsetning á sólríkasta hluta Tenerife. Héðan er stutt í þjónustu, verslanir og afþreyingu. Frábærir golfvellir og strendur í stuttri fjarlægð. Miklir möguleikar á leigu til ferðamanna allt árið um kring. Fyrirtæki í eignaumsjón eru á svæðinu, hvort sem er vegna útleigu eða almennrar eignaumsjónar. 

Við erum í samstarfi við trausta fasteignasölu á Tenerife sem fylgir kaupendum eftir í gegnum kaupferlið.
Kaupverð er í evrum 250.000. Umreiknað í íslenskar krónur til viðmiðunar miðað við gengi 12/4 2023. Ofan á kaupverð leggst 6,5% skattur ásamt kostnaði við þinglýsingu.


Nánari upplýsingar veitir Daði Runólfsson, löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 6981164, milli  kl. 9:00 og 17:00 alla virka daga, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til [email protected]

Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnaði því 40 ára starfsafmæli á árinu 2022. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli, gerir betur...

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.