Adeje tenerife , 956 Tenerife
Tilboð
Einbýli
5 herb.
385 m2
Tilboð
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
0
Brunabótamat
0
Fasteignamat
0

Gimli fasteignasala og Daði Runólfsson, löggiltur fasteigna- og skipasali kynna: 

Glæsilegt 385 fermetra einbýli með garði og sundlaug á Adeje svæðinu á Tenerife. Stórkostlegt útsýni til fjalla, yfir hafið og eyjuna La Gomera.
Húsið er staðsett í þyrpingu einbýlishúsa sem kallast Playa Fañabé Urbanization. Mjög rólegt hverfi nálægt Fañabé-ströndinni, í rúmlega 1 km fjarlægð. Í stuttri fjarlægð er Gran Sur verslunarmiðstöðin þar sem finna má alls kyns þjónustu, veitingastaði og verslanir. Í næsta nágrenni er alþjóðaskólinn Colegio Internacional Costa Adeje.
Húsið er nýlega endurnýjað með hágæða efnivið og húsgögnum. Fjögur svefnherbergi með fataskápum, tvö baðherbergi, eitt með baðkari og hitt með sturtu og tyrkneskt gufubað.
Rúmgóð stofa með stórum hurðum sem veita góða náttúrulega birtu. Fullbúið eldhús með alls kyns tækjum og opið inn í borðstofu.
Sólríkar verandir, fallegur garður með fallegum plöntum, upphituð sundlaug og bílskúr fyrir tvo bíla.

Frábær staðsetning á sólríkasta hluta Tenerife. Héðan er stutt í þjónustu, verslanir og afþreyingu. Frábærir golfvellir og strendur í stuttri fjarlægð. Miklir möguleikar á leigu til ferðamanna allt árið um kring. Traust fyrirtæki í eignaumsjón eru á svæðinu, hvort sem er vegna útleigu eða almennrar eignaumsjónar. 

Við erum í samstarfi við trausta fasteignasölu á Tenerife sem fylgir kaupendum eftir í gegnum kaupferlið.

Ofan á kaupverð leggst 6,5% skattur ásamt kostnaði við þinglýsingu.

Nánari upplýsingar veitir Daði Runólfsson löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma milli  kl. 9:00 og 17:00 alla virka daga. 6981164, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til [email protected]

Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnaði því 40 ára starfsafmæli á árinu 2022. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli, gerir betur...

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.