Amarilla golf, tenerife , 956 Tenerife
88.000.000 Kr.
Raðhús
5 herb.
171 m2
88.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
3
Inngangur
Sér
Byggingaár
2021
Brunabótamat
0
Fasteignamat
0

Gimli fasteignasala og Daði Runólfsson löggiltur fasteignasali kynna: 

Bjart, rúmgott 171 fm hús byggt árið 2021 í Amarilla Golf hverfinu á suðurhluta Tenerife. Opin og góð rými að innan sem utan.
Húsið skiptist í fjögur svefnherbergi, opið eldhús í stofu, þrjú baðherbergi og rúmgóðan kjallara með mikla nýtingarmöguleika. Húsið er bjart með gluggum og glerhurðum út á tvennar svalir í sitt hvora áttina. Þakverönd er með uppsettum sólarrafhlöðum. Góð lóð með plássi fyrir útihúsgögn og gott grillsvæði. Einkasundlaug, aðstaða til líkamsræktar og bílskúr sem rúmar þrjá bíla.

Eins og nafnið gefur til kynna er þessi staðsetning kjörin fyrir kylfinga. Í göngufæri við sjóinn, veitingastaði og afþreyingu. Svæðið er vinsælt meðal fjölskyldna sem leita að sól og slökun á sólríkum stað á Tenerife.

Kaupverð er í evrum 580.000 umreiknað í íslenskar krónur miðað við gengi 12/5 2023.

Skoðið fjölbreyttar eignir til sölu á Tenerife á www.gimli.is

Viðbótarupplýsingar:

Ofan á kaupverð leggst u.þ.b. 10% kostnaður við kaupin sem er skattur ásamt öllum öðrum umsýslukostnaði.

Nánari upplýsingar veitir Daði Runólfsson, löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 6981164 eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til [email protected]

Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnaði því 40 ára starfsafmæli á árinu 2022. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli, gerir betur...

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.