Gimli fasteignasala kynnir í einkasölu:
Fífumóa 9-11 mjög bjarta og góða íbúð á annarri hæð með sérinngangi í tveggja hæða fjórbýlishúsi með frábæru útsýni. Um er að ræða mikið endurnýjaða 3-4 herbergja 94,8 fm íbúð sem skiptist skv. teikningu í: Forstofu, eldhús/stofu í opnu rými, baðherbergi, hjónaherbergi, svefnherbergi, þvottahús og geymslu með glugga sem hægt er að nota sem herbergi.
Búið er að endurnýja eldhús, baðherbergi og gólfefni fyrir ca 5 árum.
Húsið er byggt árið 2005 úr forsteyptum og steinuðum einingum og er viðhaldslétt.Nánari upplýsingar veitir Elín Urður Hrafnberg, Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 6902602, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til [email protected]NÁNARI LÝSING:
Forstofa: með flísum á gólfi og góðum skáp.
Eldhús/stofa: í opnu rými með harðparketi á gólfi, nýlegri hvítri eldhúsinnréttingu með miklu vinnuplássi, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Úr stofu er hurð út á svalir með fallegu útsýni.
Hjónaherbergi: mjög rúmgott með harðparketi á gólfi og góðum fataskápum.
Svefnherbergi: með harðparketi á gólfi og skáp.
Geymsla/svefnherbergi: með harðparketi á gólfi, væri hægt að nota sem þriðja svefnherbergið.
Baðherbergi: með flísum á gólfi og veggjum. Upphengdu WC, hvítri tvöfaldri innréttingu með vaski, speglaskáp og baðkar með sturtuaðstöðu og glerskilrúmi.
Þvottahús: með flísum á gólfi og hillum á veggjum.
Sameign: á jarðhæð.
Niðurlag:
Um er að ræða mjög skemmtilega og snyrtilega eign sem er vel skipulögð í viðhaldsléttu húsi í rólegum botnlanga.Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnaði því 40 ára starfsafmæli á árinu 2022. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust.
Gimli, gerir betur...Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.