Fasteignasalan Gimli og Sigþór Bragason Lögg.fasteignasali sími 899 9787 kynna : Björt og vel skipulögð 127,6 fm enda íbúð ásamt bílskúr á 4.hæð við Hjarðarhaga. Tvær stofur og tvö svefnherbergi og aukaherbergi í risi. Eignin skiptist í 103,6 fm íbúðarhluta og 24.0 fm bílskúr.
Nánari lýsing:Hol með parket á gólfi miðsvæðis í eigninni, fataskápur við hol.
Rúmgott og bjart
eldhús með gluggum á tvo vegu, eldri innréttingu með góðu skápaplássi og borðkrókur við glugga.
Baðherbergið er með flísalögðu gólfi og flísum í kringum baðkar/sturtu, innrétting og opnanlegur gluggi.
Stofan er mjög rúmgóð og björt, parketlagt gólf og suður gluggar, Innaf stofu er
borðstofa með tveimur hurðum og hæg að nýta hana sem svefnherbergi, suður svalir eru út af borðstofu.
Herbergi 1, gott barnaherbergi með parketi a gólfi.
Herbergi 2, Stórt hjónaherbergi, parketlagt og fataskápar.
Herbergi 3-4, Hægt að nýta borðstofu sem svefnherbergi og síðan er risherbergi á næstu hæð sem fylgir íbúðinni.
Suður svalirGeymsla með hillum
er á jarðhæð
Bílskúr fylgir eigninni, hann er með rafmagni hurðaopnara og malbikuðu bílaplani.
Endurbætur, Búið er að endursteina húsið og skipta út flestum gluggum og gleri. Þakjárn var endurnýjað fyrir fáeinum árum.
Staðsetning er mjög góð við hlið Hagaskóla og er
einstakt útsýni úr eigninni, sér til sjávar frá tveimur hliðum íbúðarinnar og yfir Vesturbæinn og til Esjunnar úr endagluggunum.
Þetta er vel skipulögð íbúð á frábærum stað í Vesturbænum. Eignin er laus og getur verið til afhendingar við kaupsamning
Nánari upplýsingar veitir Sigþór Bragason, Löggiltur fasteigna, fyrirtækja og skipasali, í síma 899 9787, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til [email protected]
Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnar því 41 árs starfsafmæli á árinu 2023. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli, gerir betur...
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.500,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.