Laugarbraut 5, 840 Laugarvatn
31.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
2 herb.
63 m2
31.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2002
Brunabótamat
30.900.000
Fasteignamat
19.500.000

***EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA OG ÞVÍ FELLUR NIÐUR FYRIRHUGAÐ OPIÐ HÚS ÞRIÐJUDAGINN 30.MAÍ***

Gimli
fasteignasala og Ólafur B Blöndal löggiltur fasteignasali kynna: 

LAUGARBRAUT NR. 5 - LAUGARVATNI

Mjög rúmgóð og björt 2ja herbergja 63,9 fm íbúð á 1. hæð jarðhæð í 10 íbúða húsi með sérinngangi og hellulagðri verönd í suður. 

NÁNARI LÝSING:
Sérinngangur. Forstofa með fatahengi og flísar á gólfi. 
Innf forstofu er rúmgóð geymsla með glugga, væri auðvelt að nýta sem barnaherbergi. 
Mjög rúmgóð og björt stofa með útgengt á suðurverönd. Linoleum dúkur á gólfi. 
Eldhúsið er með ljósri viðarinnréttingu og plássgóðri borðaðstöðu. 
Baðherbergið er flísalagt, sturta og innrétting. 
Svefnherbergið er mjög rúmgott með skápum og linoleum dúk á gólfi. 

Sameiginlegt þvottahús þar sem hver íbúð er með sérvélar ásamt saml. hjóla og vagnageymslu. 

Frábær staðsetning. Stutt í þjónustu, sundlaug, skóla, íþróttahús og falleg útivistarsvæði en húsið stendur á mjög góðum stað ekki langt frá vatninu. 


Nánari upplýsingar veitir Ólafur Björn Blöndal Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja og skipasali, og Lilja Hrafnberg löggiltur fasteignasali /viðskipafr. í síma milli  kl. 9:00 og 17:00 alla virka daga. 6900811, 8206511 eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til [email protected] eða [email protected] 

Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnaði því 40 ára starfsafmæli á árinu 2022. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli, gerir betur...

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. 
Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á. 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.