Gimli fasteignasala kynnir í einkasölu: Norðurtröð 18 sem er 4ra hesta hesthús á Selfossi.
Um er að ræða mjög snyrtilegt 36 fm hesthús sem búið er að taka allt í gegn, byggt 1977. Að utan er húsið nýlega klætt með bárujárni og nýlegt járn er á þaki. Gluggar og hurð endurnýjuð. Steypt stétt er framan við húsið og stórt sameinlegt gerði.
Að innan er búið að taka húsið allt í gegn. Stíurnar eru riðfríar og klæddar með harðvið. Fóðurgangurinn er flísalagður og hlaðan er með steyptu gólfi og bjárujárni á veggjum. Í húsinu er kaffistofa og hnakkastandar í hlöðunni.Nánari upplýsingar veitir Elín Urður Hrafnberg, Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 6902602, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til [email protected]Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnaði því 40 ára starfsafmæli á árinu 2022. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust.
Gimli, gerir betur...Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.