Nýbýlavegur 48c, 860 Hvolsvöllur
41.900.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
2 herb.
89 m2
41.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2023
Brunabótamat
0
Fasteignamat
29.650.000

Gimli fasteignasala kynnir í einkasölu: Nýbýlaveg 48c á Hvolsvelli.
Um er að ræða 4ra herbergja endaraðhús í byggingu á Hvolsvelli.

***EIGNIN ER SELD***

Húsið er timburhús klætt með gæsagráu liggjandi bárujárnsklæðningu.
Húsið er samtals 89,4 fm samkvæmt skráningu Þjóðskrá Íslands. 
Samkvæmt teikningu skiptist húsið í forstofu, eldhús, stofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús/geymslu. 

Húsið er selt á byggingarstigi 5 tilbúið til spörslunar, lóð verður grófjöfnuð. Búið er að setja upp rafmagnstöflu og setja vinnulýsingu.
Búið er að greiða fyrir öll inntaksgjöldin. Gólfhiti í öllu húsinu, gólfhitakistan tilbúin en stýringar fylgja ekki. Loft ófrágengið þar sem gert er ráð fyrir loftaþiljum. Skilveggir að framan og aftan hvítir að lit. Búið er að leggja ídráttarrör út fyrir sökkul fyrir heitan pott í garði. 
Skilalýsing liggur fyrir á skrifstofu Gimli. 

Afhending í júlí 2023

Einnig er hægt að kaupa húsið fullbúið að innan og utan en án gólfefna nema í votrými, lóð grófjöfnuð.
Þá er afhendingin ca 6-8 vikum eftir kaupsamning. 
Verð fyrir fullbúið hús er 49.900.000-

Nánari upplýsingar veitir Elín Urður Hrafnberg, Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 6902602, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til [email protected]

NÁNARI LÝSING:
Forstofa: með þurrslípuðu gólfi.
Svefnherbergi 1#: með þurrslípuðu gólfi.
Svefnherbergi 2#: með þurrslípuðu gólfi.
Eldhús/borðstofa/stofa: eru í opnu rými með stórum glugga á gaflinum og með þurrslípuðu gólfi.
Baðherbergi: með þurrslípuðu gólfi.
Þvottahús/geymsla:  með þurrslípuðu gólfi.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður innheimt 0,3% af brunabótamati. 
Allar teikningar liggja fyrir.


Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnar því 40 ára starfsafmæli á árinu 2022. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli, gerir betur...

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á. 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.