Grafhólar 17, 800 Selfoss
88.450.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
4 herb.
182 m2
88.450.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2006
Brunabótamat
91.100.000
Fasteignamat
82.150.000

Gimli fasteignasala kynnir: Grafhóla 17, virkilega gott 4 herbergja raðhús á góðum stað á Selfossi.

Um er að ræða 182,7 fm steinsteypt raðhús þar af er bílskúr 36,7  fm.
Að innan telur eignin forstofu, þrjú rúmgóð svefnherbergi, stofu, eldhús, þvottahús, baðherbergi, gestasnyrtingu og bílskúr. Eikar parket er á öllum gólfum nema votrýmum þar er flísalagt. Eldhús og stofa er í opnu alrými þar sem útgengt er út á sólpall til suðurs. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með opnum sturtuklefa með gleri, upphengdu salerni, eikar innréttingu með handlaug og opnanlegum glugga.
Bílskúr er rúmgóður með steyptu gólfi og góðri innkeyrsluhurð. Þriggja fasa rafmagn er í bílskúr. Möl er í bílaplani.


Nánari upplýsingar veitir Ragna Valdís Sigurjónsdóttir, aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 846-6581 eða með tölvupósti á [email protected] og Elín Urður Hrafnberg Löggiltur fasteigna- og skipasali.

NÁNARI LÝSING:
Forstofa: Er rúmgóð með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Eldhús: Er í opnu alrými, mjög rúmgott með góðu vinnuplássi. Svört AXIS eldhús innrétting með góðu skápa plássi ásamt eldhúseyju.  Eikar parket er á gólfi.
Stofa/borðstofa: Er samliggjandi eldhúsi í opnu alrými með eikar parketi á gólfi. Útgengt er útá sólpall til suðurs.
Baðherbergi: Er flíslagt í hólf og gólf með eikar innréttingu með handlaug. Upphengt salerni. Opin sturtuklefi með gleri og opnanlegur gluggi.
Gestasnyrting: Er inn af forstofu með flísum á gólfi, eikar innréttingu, upphengdu salerni og opnanlegum glugga.
Hjónaherbergi #1: Er með eikar parketi á gólfi og góðum fataskáp. Úr hjónaherbergi er úgengt útí bakgarð.
Herbergi #2: Er með eikar parketi á gólfi og fataskáp.
Herbergi #3: Er með eikarparketi á gólfi og fataskáp.
Sjónvarpshol: Er í miðju hússins með eikar parketi á gólfi.
Þvottahús: Úr þvottahúsi er innangengt inní bílskúr og einnig útgengt út í garð. Flísar á gólfi.
Bílskúr: Er rúmgóður með steyptu gólfi og góðri innkeyrsluhurð.
Garður: Er gróinn og góður sólpallur til suðurs. Möl er í bílaplani.

Góð staðsetning á Selfossi í grónu hverfi þar sem stutt er í verslanir og þjónustu, leikskóla og skóla.
Virkilega fjölskylduvænt hús.


Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnar því 40 ára starfsafmæli á árinu 2022. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli, gerir betur...

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.500,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á. 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.