Einiberg 19, 221 Hafnarfjörður
58.500.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
3 herb.
66 m2
58.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1960
Brunabótamat
29.400.000
Fasteignamat
51.000.000

Gimli fasteignasala og Herdís Valb. Hölludóttir kynna: Fallega og bjarta 3ja herbergja rishæð í tvíbýlishúsi á eftirsóttum stað að Einibergi 19, 221 Hafnarfirði.
Hæðin er rúmgóð með tveimur svefnherbergjum, sérinngangi og hefur verið töluvert endurnýjuð í gegnum árin. Góð bílastæði og sólríkur garður.
Gólfflötur íbúðar er töluvert stærri en skráðir fermetrar þar sem að hæðin er að hluta til undir súð.
Eignin er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 208-1180, birt stærð 66.7 fm. Nánar tiltekið eign merkt 02-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Bókið skoðun hjá Herdís Valb. Hölludóttir í síma 694-6166, eða [email protected]


NÁNARI LÝSING:
Anddyri: Sérinngangur og fatahengi.
Eldhús:Falleg innrétting frá HTH með góðu skápaplássi, borðkrók og innbyggðri uppþvottavél og spanhelluborði frá AEG.
Baðherbergi: Með hvítri innréttingu, veggföstu salerni, baðkari með sturtuaðstöðu og tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.
Herbergi I:Bjart með tveimur gluggum og fataskáp.
Herbergi II:Rúmgott með góðum fataskáp.
Stofa/borðstofa: Er björt og rúmgóð.
Gólfefni íbúðar: Harðparket og flotuð gólf.
* Smelltu hér fyrir söluyfirlit *
Samantekt: Virkilega falleg og björt eign á besta stað í Hafnarfirði. Eignin er töluvert stærri en uppgefnir fermetrar gefa til kynna og hefur skipulagi verið breytt frá samþykktum teikningum. Stutt í helstu þjónustu s.s. skóla og verslanir.
Nánari upplýsingar veitir: Herdís Valb. Hölludóttir Löggiltur fasteignasali og lögfræðingur, í síma 6946166, tölvupóstur [email protected] eða [email protected]

Gimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta. Gimli, gerir betur...
Gimli er staðsett á 2. hæð á Grensásvegi 13, 108 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.
Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími: 570 4800, tölvupóstur: [email protected]
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.