Mjög björt, falleg og rúmgóð 4ja herbergja enda íbúð á fjórðu hæð, í lyftufjölbýli á góðum stað á Völlunum í Hafnarfirði.
Sérmerkt stæði í lokuðum bílakjallara og stórar og góðar svalir sem snúa til suðurs.Eignin er laus við kaupsamning og er fordæmi fyrir dýrahaldi í húsinu.
Bókið skoðun. Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands 105,4 fm þar af er sérgeymsla 10,3 fm.Eignin skiptist í 3 svefnherbergi , stofu/borðstofu, eldhús, baðherbergi og þvottahús innan íbúðarinnar.
Nánar um eignina:Forstofa og hol með góðu skápaplási og flísum á gólfi.
Stofa er í sameiginlegu rými með eldhúsinu, útgengt út á stórar suður salir, parket á gólfi.
Eldhús er með góðri innréttingu, pláss fyrir uppþvottavél og parket á gólfi.
Baðherbergi er með sturtu, upphengt salerni, góðu skápapláss og flísar á gólfi og veggjum.
Sérþvottahús er innan íbúðarinnar með flísum á gólfi, vaskur, vinnuborð og skápur. Hægt að hafa frystikistu eða skáp.
Sérgeymsla er í sameign
Sérmerkt bílastæði er í lokuðum bílakjallara undir húsinu.Íbúðin er endaíbúð og hefur glugga á þrjá vegu.Á jarðhæðinni eru sameiginlegar hjóla og vagnageymslur og góð sérgeymslu fyrir íbúðina.
Falleg sameiginleg lóð með grasi, hrauni og leiktækjum. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu s.s. grunn- og leikskóla, verslun, líkamsrækt, íþróttasvæði Hauka,
sundlaug, góðar göngu- og hjólaleiðir o.fl.
Um er að ræða fallegt steinað fjölbýli á góðum stað í Vallarhverfinu í Hafnarfirði.
Nánari upplýsingar veitir Inga Reynis löggiltur fasteignasali í gsm 820-1903 eða á netfanginu [email protected]